Kristinn Agnar

Manchester United

17.04.2008 14:45:03 / Kristin82

„Fyndnasta og skemmtilegasta Eurovision myndbandið

Þetta er myndband í Eurovision myndbandið í árið 2008 http://www.nova.is/Pages/forsida.aspx

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 16:46:32 / Kristin82

Enn snjóar á Akureyri

http://www.mbl.is/mm/frettir/sjonvarp/?fl=0;media_id=14958;play=1

Enn snjóar á akureyri en spá verður stofan í næstum dagar sjórkoma í næstum dagar?


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 16:41:06 / Kristin82

Snjóflóð féll á snjóruðningsbíl

Um hádegisbilið í dag féll snjóflóð í Mjósundunum við Stöðvarfjörð og féll það á snjóruðningsbíll Vegagerðarinnar. Ökumanninn sakaði ekki en bíllinn sem er stór vörubíll með snjótönn snérist og endaði þversum á veginum.

Vegurinn lokaðist í um eina klukkustund á meðan verið var að ryðja hann og losa snjóruðningsbílinn.

Björgunarsveitamenn í björgunarsveitinni Geisla á Reyðarfirði þurftu að beita fortölum til að fá fólk sem sat fast í bílalest á Fagradal til að snúa við. „ Við fórum skömmu fyrir hádegi til að koma skikki á þetta og fá fólkið sem var komið upp á dag til að snúa við," sagði Heiðar Árdal Jóhannsson formaður Geisla.

Hann sagði að um 12 fólksbílar og nokkrir sendibílar hefðu verið í bílalestinni en að fremstu bílarnir hefðu setið fastir. „Það var náttúrulega alveg kolvitlaust veður þarna," sagði Heiðar.

Hann bætti því við að hjálparsveitin hefði fengið snjóruðningsbíl Vegagerðarinnar til að ryðja bílalestinni braut til baka til byggða. „Þegar við fórum framhjá veðurskiltin stóð að það væri ófært á dalinn, ég veit ekki hvort hunsaði það bara eða hvernig það var. Síðan kom það fyrir að fólk neitaði bara að snúa við en við náðum nú loksins til að tala fólk til og fá það til að snúa við," sagði Heiðar.

 Heiðar sagði að einhverja bíla hefði þurft að skilja eftir á dalnum en megninu af þeim hafi tekist að snúa við.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 17:35:16 / Kristin82

VISA-bikar karla

Neisti D. Boltaf. Norðfj.
 Byrjunarlið
Ársæll Axelsson (M) Björgvin Hrannar Björgvinsson (M) 
Bjartmar Þorri Hafliðason   Örn Rósmann Kristjánsson   
Sigurjón Stefánsson   Kristinn Agnar Eiríksson   
Skúli Andrésson   Ólafur Arnar Sveinsson   
Ljubodrag Milosevik   Kristófer Snær Egilsson   
Sveinn Ari Guðjónsson  (F) Þorvarður Sigurbjörnsson   
Snjólfur Gunnarsson   Karl Rúnar Róbertsson   
Anton Stefánsson  Sverrir Ágústsson   
Njáll Reynisson   Gunnar Stefán Larsson  (F) 
10 Hallur Kristján Ásgeirsson   10 Jón Hilmar Kárason   
11 Rafn Heiðdal   18 Atli Már Magnússon   
 
 Varamenn
12 Natan Leó Arnarsson   14 Fannar Berg Valsson   
13 Róbert Fannar Hilmarsson   15 Pjetur St Arason  
14 Matthías Baldur Auðunsson  17 Marcin Maciej Mojzyszek  
15 Óðinn Sævar Gunnlaugsson    
16 Pálmi Fannar Smárason    
 
 Liðsstjórn
 Óli Halldór Sigurjónsson  (Þ;)  
 Guðrún Jóna Kristjánsdóttir    
 Albert Jensson    
 
 Mörk
10 Hallur Kristján Ásgeirsson Mark 79 18 Atli Már Magnússon Mark úr víti 45 
10 Hallur Kristján Ásgeirsson Mark 92  
10 Hallur Kristján Ásgeirsson Mark 94  
 
 Áminningar og brottvísanir
Njáll Reynisson Áminning 31  
Snjólfur Gunnarsson Áminning 67  
101 Óli Halldór Sigurjónsson Áminning 73  
 
 Skiptingar
 Kristinn Agnar Eiríksson Út 22 
 14 Fannar Berg Valsson Inn 22 
 Örn Rósmann Kristjánsson Út 64 
 15 Pjetur St ArasonInn 64 
 Ólafur Arnar Sveinsson Út 87 
 17 Marcin Maciej MojzyszekInn 87 
      
 
Fyrri hálfleikur: 0-1
Seinni hálfleikur: 3-0

Úrslit: 3-1
Dómarar
Dómari  Ingólfur Hafsteinn Hjaltason
Aðstoðardómari 1  Jóhann Óskar Þórólfsson
Aðstoðardómari 2  Óðinn Ómarsson

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 17:32:40 / Kristin82

VISA-bikar karla

Leikskýrsla

KE Boltaf. Norðfj.
 Byrjunarlið
Karl Óskar Jónsson  (M) Gunnar Stefán Larsson  (M) 
Heiðar Högni Guðnason   Guðmundur Arnar Guðmundsson   
Baldur Einar Jónsson   Þorvarður Sigurbjörnsson   
Arnar Guðnason   Sigurður Hallur Jónsson   
Sveinn Brimir Björnsson  (F) Ómar Magnússon   
Kristján Ragnar Bjarnason   Jón Hilmar Kárason   
Karl Stephen Stock   Elvar Jónsson   
Kristinn Bjarki Hjaltason   Karl Rúnar Róbertsson  (F) 
Davíð Brynjar Sigurjónsson   Grétar Örn Sigfinnsson   
10 Ágúst Bjarni Guðmundsson   10 Kristinn Agnar Eiríksson   
11 Vignir Örn Ragnarsson   11 Einar Jón Axelsson   
 
 Varamenn
18 Benjamín Þór Kristjánsson   13 Pjetur St Arason  
 15 Karl Már Einarsson   
 
 Liðsstjórn
 Símon Jóhann Benediktsson (Þ;)  Heimir Þorsteinsson  (Þ;) 
 
 Mörk
 Jón Hilmar Kárason Mark 
 15 Karl Már Einarsson Mark 66 
 Grétar Örn Sigfinnsson Mark 80 
 15 Karl Már Einarsson Mark 81 
 
 Skiptingar
Davíð Brynjar Sigurjónsson Út 79 Karl Rúnar Róbertsson Út 37 
18 Benjamín Þór Kristjánsson Inn 79 13 Pjetur St ArasonInn 37 
 10 Kristinn Agnar Eiríksson Út 62 
 15 Karl Már Einarsson Inn 62 
      
 
Fyrri hálfleikur: 1-1
Seinni hálfleikur: 0-3

Úrslit: 1-4
Dómarar
Dómari  Eysteinn Þór Kristinsson
Aðstoðardómari 1  Bergvin Snær Andrésson
Aðstoðardómari 2  Silja Þórunn Arnfinnsdóttir

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 20:03:54 / Kristin82

Mikið frost í Veiðivatnahrauni

Frostið á landinu mældist mest  um 30 stig aí nótt  og víða á Suðurlandi og inn til landsins var frostið meira en 20 stig. Mesta frost sem mælst hefur á landinu er 38 stig. Snjókoma eða él einkenndi veðrið norðan og austan til á landinu, en annars var léttskýjað. Gert er ráð fyrir að það dragi smám saman úr frostinu, en áfram verður kaldast í innsveitum.

Mesti næturkuldinn var á miðhálendinu vestan Vatnajökuls. Í Veiðivatnahrauni við Þórisvatn mældist frostið 30,3 stig milli klukkan þrjú og sex og í Þúfuveri sunnan Þjórsárvera 29,1 stig á sama tíma.Á láglendi var frostið aðeins minna. Á Kálfhóli við Þjórsá var frostið mest 23,7 stig og víða á Suðurlandi, eins og til dæmis í Árnesi og Búrfelli, var frostið um og yfir 22 stig. Í Reykjavík mældist mest 19,4 stiga frost. Annars staðar en á Suðurlandi og miðhálendinu var minna frost.

Frostaveturinn mikla 1918 var kaldast í Reykjavík og víðar á landinu frá því mælingar hófust. 21. janúar fyrir 90 árum mældist 24,5 stiga frost í Reykjavík, 36 stiga frost á Grímsstöðum og 38 stiga frost í Möðrudal. Á nokkrum öðrum stöðum mældist frostið um 30 stig, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar. http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/02/02/mikid_frost_i_veidivatnahrauni_2/


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 19:19:38 / Kristin82

Guðmundur Andri sá þriðji frá Grindavík

Guðmundur Andri er þriðji leikmaðurinn sem kemur til liðs við KFF frá Grindavík. Áður hafa þeir Andri Hjörvar og Guðmundur Atli komið til félagsins. Andri kom til liðs við KFF vorið 2006 og spilaði stórt hlutverk í liðinu sem vann 2.deildina það ár. Andri var valinn í lið ársins það ár og einnig valinn leikmaður ársins hjá KFF. Andri átti svo mjög gott tímabil á fyrsta ári KFF í 1.deildinni síðastliðið sumar. Guðmundur Atli kom til liðsins vorið 2007 og skoraði 10 mörk í deildarbikarnum. Ljóst er að Guðmundur er gífurlega efnilegur framherji sem á mikið inni. Guðmundur skoraði tvö mörk í 1.deildinni og annað þeirra í sigurleik á 1.deildarmeisturunum í Grindavík. Reynslan er því góð af því að fá leikmenn frá Grindavík. Reyndar eru þeir Andri og Guðmundur Atli ekki uppaldir Grindvíkingar því Andri er uppalinn í Þór Ak og Guðmundur Atli í BÍ og HK. Guðmundur Andri er hins vegar uppalinn í Grindavík frá blautu barnsbeini. Tekinn frá www.kff.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 18:25:17 / Kristin82

Wenger reyndi að fá Cristiano Ronaldo

Arsene Wenger þjálfari Arsenal sagði við fréttastofu BBC að hann hafi reynt að fá Cristiano Ronaldo áður en hann gekk til liðs við Manchester United í ágústmánuði árið 2003.

,,Hann var hérna langt á undan, hann getur sagt ykkur það ef hann er viljugur til þess," sagði Wenger.

,,Manchester United voru í bræðralagi með Sporting Lisbon þegar að aðstoðarþjálfari þeirra, Carlos Queiroz kom og það gerði málið erfitt fyrir okkur hjá Arsenal."

Wenger vildi ekki tala neitt meira um veru Cristiano Ronaldo hjá Arsenal.

,,Ég vil ekki fara að búa til eitthverja sögu, það er ekki þörf fyrri því," sagði Wenger við BBC.

Ronaldo hefur spilað frábærlega á tímabilinu og hefur skorað 29 mörk í öllum keppnum. Þar af 19 mörk í deildinni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 18:19:58 / Kristin82

Magni Fannberg: Guðmundur verður mikill styrkur fyrir Fjarðabyggð

Fjarðabyggð úr fyrstu deild fékk í dag góðan liðsstyrk þegar að Guðmundur Andri Bjarnason gekk til liðs við félagið en hann kemur frá Grindavík. Guðmundur skrifaði undir þriggja ára samning við Fjarðabyggð á skrifstofu Orkusölunnar og við sama tækifæri gerðu Fjarðabyggð og Orkusalan með sér eins árs styrktarsamning.

Guðmundur er ánægður með að vera kominn til Fjarðabyggðar. ,,Ég er mjög sáttur, það verður fínt að prófa eitthvað nýtt," sagði Guðmundur við Fótbolta.net eftir að hafa skrifað undir í dag. Hann æfði með Fjarðabyggð eina helgi á dögunum og lék með liðinu í æfingaleik gegn KR.

,,Ég fæ tækifæri til að spila heilt tímabil sem byrjunarliðsmaður vonandi, ég þekki þjálfarann, kannast við nokkra stráka þarna og leist vel á. Þetta er fínt lið og góðir strákar," bætti Guðmundur við.

Magni Fannberg þjálfari Fjarðabyggðar var einnig ánægður með að fá Guðmund en hann er fjórði leikmaðurinn sem félagið fær í vetur. Áður hafði félagið fengið Sveinbjörn Jónassyni sem kom frá Huginn, Jóhann Jónsson sem kom frá Leikni F. og Pétur Geir Svavarsson sem kom frá BÍ/Bolungarvík.

,,Ég lít á Guðmund sem einn af þremur sterkum leikmönnum sem ég ætlaði að fá mér. Hann verður mikill styrkur fyrir félagið. Ég tel að hann sé vanmetinn leikmaður og hefur verið það í Grindavík, hann hefur ekki fengið þau tækifæri sem hann hefur átt skilið og ég vona að ég sé að gefa honum svolítið nýtt líf í fótboltanum með að taka hann austur," sagði Magni sem ætlar að fá tvo sterka leikmenn í viðbót til Fjarðabyggðar en möguleiki er á að liðið fá leikmenn frá Svíþjóð.

,,Það gæti verið að það komi leikmenn frá Svíþjóð, við vitum ekkert með þau mál. Undirbúningstímabilið hjá þeim er núna komið á fjórðu viku og það á helling eftir að skýrast. Síðan kemur frí í kringum Evrópumótið hjá þeim og þá er aldrei að vita hvað gerist."

,,Það eru tveir íslenskir leikmenn í sigtinu, miðjumaður og sóknarmaður. Annar er nánast klár og síðan er verið að skoða með leikmenn. Það er líklegt að það verði útlendingar, það eru ekki margir lausir á Íslandi," sagði Magni Fannberg þjálfari Fjarðabyggðar að lokum við Fótbolta.net.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 17:49:39 / Kristin82

Guðmundur Andri Bjarnason í Fjarðarbyggð (Staðfest)

Fjarðarbyggð hefur fengið góðan liðsstyrk því Grindvíkingurinn Guðmundur Andri Bjarnason hefur skrifað undir samning við félagið.

Guðmundur hætti hjá Grindavík eftir tímabilið og mun leika með Fjarðarbyggð næstu þrjú tímabilin.

Guðmundur Andri er 26 ára gamall og á að baki 67 leiki í Landsbankadeild karla og hefur skorað í þeim fjögur mörk. Hann á enn tvö ár eftir af samningi sínum hjá Grindavík.

Hann lék 11 leiki með Grindavík í 1. deildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark. Auk þess lék hann tvo leiki með liðinu í VISA bikarnum.

Á sama tíma skrifaði Fjarðarbyggð undir eins árs styrktarsamning við Orkusöluna. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2008 09:00:18 / Kristin82

Rajko knattspyrnumaður Þróttar

Markmaðurinn okkar Srdjan Rajkovic var á dögunum valinn knattspyrnumaður Þróttar fyrir árið 2007. Rajko átti frábært ár í 1.deildinni og fékk annað árið í röð á sig fæst mörk í landsdeildum Íslandsmótsins. Hann var svo valinn í lið ársins í 1.deildinni og þar með valinn besti markvörður deildarinnar. Á lokahófi KFF var svo Rajko einnig valinn leikmaður ársins af leikmönnum og þjálfurum. Tekinn frá www.kff.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 20:02:35 / Kristin82

Það er kominn 40 manns að kika í heimasiðu hjá mér kl 20 í kvöld

Það er kominn 40 manns kika í heimasiðu hjá mér kl 20:00 í kvöld ég hef ekki séð þessar tölu áður hvernig er kominn í kl 00:00 í kvöld kannski komið í 60 - 70 manns láttu mér vita ef 1 deild er vitlaust og 2 deild

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 19:23:13 / Kristin82

Fastnúmerakerfi í 1.deild karla?

Númer hvað verður Jóhann Ingi?
Nú eru sterkar líkur á því fastnúmerakerfi verði í 1.deildinni á komandi keppnistímabili. Hefur þetta kerfi hingað til aðeins verið í úrvalsdeildinni. Flest lið í 1.deild vilja þetta og er KFF eitt þeirra. Hver leikmaður hefur þá sitt númer, sama hvort hann spilar eða ekki, en fram að þessu hafa leikmenn sem hefja leik verið númeraðir frá 1-11 og varamenn frá 12-16. En nú getur t.d leikmaður númer 25 hafið leikinn o.s.frv.. Er þetta hluti af því að markaðsetningin og umgjörðin í kringum 1.deildina er alltaf að eflast. Ég var að taka þetta í www.kff.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 19:35:17 / Kristin82

Samstarf KFF við Leikni F.

Einhver misskilnings virðist gæta með neðangreinda frétt um samstarf KFF við Knattspyrnufélag Reyðarfjarðar. Með því er ekki verið að loka á samstarf við önnur félög í Fjarðabyggð og er fullur vilji hjá stjórn KFF að vera í góðu samstarfi við hið fornfræga félag Leikni Fáskrúðsfirði. Formenn og stjórnir KFF og Leiknis hafa rætt töluvert saman að undanförnu og vilji beggja aðila er að vera í góðu samstarfi með mfl. karla og æfa leikmenn beggja félaga nú saman þar til þjálfari Leiknis kemur austur um miðjan febrúar. Einnig munu kvennalið félaganna spila saman undir heitinu Fjarðabyggð/Leiknir næsta sumar. Tók þetta frá www.kff.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 19:33:43 / Kristin82

Samstarf Fjarðabyggðar við KFR

Í kvöld mætir Knattspyrnufélag Reyðarfjarðar (KFR) liði Hattar í æfingaleik í Fjarðabyggðarhöllinni. Hefst leikurinn kl. 19:30. Í liði KFR verða átta leikmenn sem eru í æfingahóp Fjarðabyggðar. Eru þetta leikmenn sem spiluðu minnst á móti Vesturbæjarstórveldinu (KR) síðastliðinn laugardag. Er þetta vonandi upphaf af samstarfi milli þessara félaga hér í Fjarðabyggð. Hluti af þessu samstarfi felst í því að nokkrir strákar úr KFR sjá um liðstjórn og margvíslega umgjörð í kringum lið Fjarðabyggðar en á móti “skaffar” Fjarðabyggð liði Reyðfirðinga leikmenn að einhverju marki og hugsanlega ýmiskonar aðstoð t.d faglega. Vonandi fer þetta samstarf vel af stað og þá er útlít fyrir að bæði félög hafi mikinn hag af þessu. Ég tók þetta úr www.kff.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8